26 september 2008

Bráðamóttaka barna

Þá er skólinn búinn og munu næstu vikur fara í verknám og lokaverkefnisvinnu. Ég byrja á því að fara á Bráðamóttöku barna næstu 3 vikurnar þannig að það eru spennandi en erfiðir tímar framundan.

Ég er ekki mjög sátt við gengið þessa dagana, sérstaklega þar sem ég er í ferðanefnd bekkjarins og við erum að reyna að plana útskriftarferð. Þetta mun allavega ekki verða ódýrt, svo mikið er víst. Það er reyndar ekki ennþá búið að ákveða hvert verður farið, eigum enn eftir að fá einhver tilboð. Það sem ég er mest spennt fyrir í augnablikinu er Egyptaland og Brasilía.

En nú er ég á leið að hitta hjúkkurnar mínar, við ætlum að útbúa strawberry daiquiry á línuna og gera það sem við gerum best: kjafta langt fram á kvöld :)

Hófí (sem er aftur orðin dökkhærð)

3 ummæli:

Nafnlaus sagði...

Ef gengið er svona leiðinlegt, verður útskriftarferðin ekki bara að vera innanlands... spennó að fara á Egilsstaði t.d.

Nafnlaus sagði...

Ha ha ha......Góður Birkir thíhí.:):) Akkúrat staðurinn sem að útskriftanemar vilja fara á hehehe.:) En mar finnur sko fyrir þessum breytingum í öllu.:( Þið finnið eitthvað skemmtilegt land til að húllum hæjast á hehehe.:)

Nafnlaus sagði...

Veit nú ekki hversu vel bekkurinn mundi taka þeirri uppástungu :) Krónan heldur bara áfram að falla þannig að kannski endar þetta á vali á milli Egilsstaða og Ísafjarðar....hver veit ;)