27 ágúst 2008

4. árið

Þá er ég loksins farin að sjá fyrir endann á B.S. gráðunni minni, fjórða árið að hefjast og ég held ég hafi bara aldrei verið spenntari að byrja aftur í skólanum eftir sumarfrí. Enda eru áfangarnir að höfða mikið til mín, er t.d. í áfanga sem heitir Barneignir og fjölskyldan sem er eiginlega hálfgerður ljósmóðurfræðiáfangi :)

Á þessum þremur skóladögum hef ég samt komist að því að það verður alveg nóg að gera næstu mánuðina; fyrirlestrar, 3 verknám, fjöldi verkefna og svo auðvitað lokaverkefnisundirbúningur. Ég er loksins búin að ákveða lokaverkefni, en við Beta ætlum saman að gera rannsókn og fræðilega úttekt um verkjastillingar sem konur nota í fæðingu. Til að fá leyfi fyrir rannsókninni þurfum við að senda úttekt og rökstuðning fyrir rannsókninni til Vísindasiðanefndar þannig að það er ekki seinna en vænna að fara að byrja á þessu. Enda erum við búnar að vera ofursamviskusamar og byrjaðar að skipuleggja okkur í heimildaleitinni. Já og ég byrjaði að læra heima á degi 1 á þessari önn sem hefur ekki gerst alla mína skólagöngu! Veit ekki hvaðan þessi skólaorka er að koma. Það á því að taka fjórða árið með trompi, vera ofur samviskusöm og reyna að halda meðaleinkunni uppi eða jafnvel hækka hana smá :) Kannski mikil bjartsýni, kemur í ljós.

Ég flutti lögheimili mitt til Reykjavíkur fyrir stuttu síðan og er því orðin löggiltur Reykvíkingur. Ég hefði nú alveg viljað vera löggiltur Akureyringur áfram en neyddist til að gerast sunnlendingur til að fá frítt strætókort. Já, það sem maður gerir ekki fyrir 30.000 kall.

Annars splæsti ég í ný Armani gleraugu um daginn fyrir 43.000 kall! Úff, það fer nú að líða að því á næstu árum að maður fari í laser aðgerð. En það var allavega kominn tími á að endurnýja gömlu gleraugun.

Hófí

5 ummæli:

Nafnlaus sagði...

Vá hvað ég vildi að mín skólaorka væri svona mikil, er svona alveg við það að klára að flytja og væri sko alveg til í að hvíla mig í 2-3 daga áður en þetta byrjar :) en það er gott að þér líkaði pina coladað, þetta er ekta sólardrykkur ;)
En ég bið að heilsa í bæinn

Nafnlaus sagði...

Hvert ertu að flytja?

Nafnlaus sagði...

ég er flutt uppí kjalarsíðu

Nafnlaus sagði...

Gangi ther vel ezzkan.:):) Veit ad thu att eftir ad verda super samviskusom i vetur hehehe.:):) OMG bara trui thvi ekki ad 4 arid se byrjad hja ther skvis.:) Knus fra danaveldi.:)

Nafnlaus sagði...

innilega til hamingju með afmælið skvís.:) Ætlaði að gera aðra tilraun að hringja en áður en ég vissi af var kl. orðin svo margt hehehe.:) Vona að þú hafir haft ljúfan dag thíhí.:)