Ég er mikið búin að vera að velta fyrir mér lokaverkefninu mínu undanfarið; hvað ég eigi nú að taka fyrir. Komin með nokkuð margar hugmyndir og var að senda leiðbeinanda mínum þær. Verður gaman að sjá hvað henni finnst. Ég vil bara fara að ákveða þetta sem fyrst. Þoli ekki svona óvissu. Þá get ég líka byrjað að undirbúa mig fljótlega því þetta verður pottþétt mikil vinna. Ég hélt að maður væri bara að gera þetta blessaða lokaverkefni á síðustu önninni en nei, maður er víst í fullt af áföngum líka og á að skrifa lokaverkefnið á einhverjum vikum sem maður fær í "frí".
Annars skelltum við Egill okkur norður um versló. Ferðin heppnaðist vel. Fórum tvisvar í sumarbústaðinn og hittum vini og kunningja. Sigrún kenndi mér að gera rosalega góða Pina Colada sem ég mun eflaust nýta mér í framtíðnni :)
Framundan er stutt og ljúf vinnuhelgi þar sem ein stelpa í vinnunni skuldar mér 12 tíma vakt. Ákvað að nýta tækifærið og taka mér frí á sunnudaginn en þá erum við Egill búin að vera saman í 3 ár. Þetta líður allt of hratt. En við ætlum allavega að reyna að gera eitthvað skemmtilegt þá.
Annars held ég að ég sé komin með svefnsýki, sef alveg endalaust mikið. Og þá meina ég meira en venjulega sem var líka mikið :)
Hófí
08 ágúst 2008
Gerast áskrifandi að:
Birta ummæli (Atom)
1 ummæli:
Vá þrjú ár skvís.:):) En hvað tíminn líður hehehe.:):) Við sjáumst bara í næstu törn á hvorn veginn sem það er....ég suður eða þú norður ha hahah.:):) Bara grats turtildúfurnar mínar og reynið að gera eitthvað skemmtilegt á sunnudaginn til að halda upp á þetta hehehe.:):) Og Hófí....bannað að sofa hehehe.:)
Skrifa ummæli