Ég hef eiginlega ekki haft tíma til að hugsa um þetta s.k. kreppuástand sem ríkir á Íslandi. Það eina sem ég veit er að ég er fegin því að eiga ekki neinar eignir á hækkandi lánum. Allir bankar að fara á hausinn. Ég er virkilega farin að halda að útskriftarferðin endi bara í hringferð í kringum landið.
Ég á ennþá eftir 3 vaktir á bráðamóttöku barna. Þótt mér finnist ég nú eiga frekar heima á vökudeildinni þá er þetta skemmtileg og fjölbreytt deild. Allt annar taktur einhvern veginn. En þótt þetta sé búið að vera langar 2 vikur þá ég er búin að læra alveg helling og er það fyrir mestu. Ég gæti svo sem alveg hugsað mér að vinna þarna einhvern tímann, en maður er bara svo vanafastur. Ég er orðin of heimakær á vökunni. Er einmitt að fara á næturvaktahelgi þar núna á eftir. Þannig það er alveg búið að vera nóg að gera og verður þannig í þó nokkurn tíma í viðbót. Er í augnablikinu að skrifa verkefni um hægðatregðu barna, spennandi. Þetta er samt alveg ótrúlega algeng ástæða fyrir því að börn eru að koma á bráðamóttökuna.
Bestu fréttirnar sem ég hef fengið í dag er próftaflan mín, en ég er búin í prófum 11.DESEMBER, sem hefur aldrei gerst áður. Ég er mjög ánægð með þetta þótt maður fái færri daga til að lesa undir próf. Við Egill verðum svo fyrir norðan um jólin og sunnan um áramótin. Mig er bara farið að langa í malt og appelsín við að skrifa þetta.
Annars styttist óðum í norðurför hjá mér en ég á flug 23. október og verður það kærkomin 3ja daga hvíld. Plús það að ég fæ að knúsa nýjasta fjölskyldumeðliminn. Hlakka til.
Jæja,ég ætla að reyna að leggja mig smá fyrir nætuvaktina, þrátt fyrir brjálað partý í næsta húsi.
Hófí
10 október 2008
Gerast áskrifandi að:
Birta ummæli (Atom)
7 ummæli:
OHHHH en æðislegt fyrir þig að vera búin svona snemma í prófunum hon.:) Hlakka til að sjá þig þegar þú kemur.:)
Ég er ekkert mjög ánægð með þessa próftöflu, próf 12., 15. og 16. desember - alltof lítill tími á milli þessara prófa.
Úff, próf daginn eftir próf....hljómar ekki vel. Ég verð sem sagt búin í prófunum þegar þú ert ða byrja...spes.
Nýjasta fjölskyldumeðliminn ?? ekki alveg að fylgjast með.. :)
Ég er ekki búin að vera í blogg gírnum síðustu mánuðina :) það gæti farið að gerast samt :D
Kanski maður rekist á þig þegar þú kemur norður, þú ert allavega velkomin í heimsókn :)
hehe ég verð ekki í neinum prófum, verð bara að baka og gera jólaskraut ;)
Bjarmi, lítill chiuahua hvolpur er nýjast fjölskyldumeðlimurinn :) Þakka boðið, þetta verður mega stutt stopp en það er aldrei að vita nema ég kíki við :)
Oj þér Kata. Þú verður þá bara að baka fyrir mig líka ;)
ekki málið að baka fyrir þig. mun sjá þér fyrir sykurskammtinum þessa próftíðina ;)
Skrifa ummæli