Þá er verknámi mínu í geðhjúkrun lokið þó svo að ég hafi reyndar misst af síðasta deginum vegna veikinda. Fékk flensuna og lá fyrir í allan gærdag. Er að jafna mig í dag en stefni á 12 tíma vinnuvakt á morgun ef heilsan leyfir. Var búin að gleyma því hvað það er ógeðslegt að vera með hita. Manni er heitt og kalt til skiptis og veit ekkert hvernig maður á að vera.
Annars er ég að setja mig í prófgírinn; raða glósum og taka til í kompunni (læriherberginu). Fer bara í 3 próf þessa önnina sem raðast svona:
Öldrunarhjúkrun 06. maí. 09:00-12:00
Hjúkrunarstjórnun 09. maí 09:00-12:00
Geðhjúkrun og geðheilbrigði 14. maí 09:00-12:00
Þannig að það er eins gott að fara að byrja að læra bráðlega. Trúi ekki alveg að ég sé að fara að klára þriðja árið.
Annars var ég að lesa þessa frétt. Hryllilegur dauðdagi. Mér er alveg sama hversu óalgengar hákarlaárásir eru, ég ætla ekki langt út í sjóinn á Krít.
Hófí
26 apríl 2008
Gerast áskrifandi að:
Birta ummæli (Atom)
2 ummæli:
Vona að þú sért búin að jafna þig hon af veikindunum.:):) Ég segi nú eins og þú hehehe:) finnst svo stutt síðan að þú byrjaðir og nota bene átt bara eftir 1 ár í þessu dæmi.:):) Gangi þér vel í prófunum.:):)
Hellú
Jámm tíminn er ekkert smá fljótur að líða...
Vona svo að prófin gangi vel, að sjáfsögðu rúllaru þeim upp ef ég þekki þig rétt :)
heyrumst
Skrifa ummæli