09 maí 2008

Kompan og ég

Þessa dagana bý ég inni í ca. 4 fermetra gluggalausu kompunni okkar (eins gott að vera ekki með mikla innilokunarkennd). Þarna sit ég á skrifborðsstólnum með einn kodda undir rassinum og annan við bakið til að reyna að koma í veg fyrir aumar rasskinnar og slæmt mjóbak. Það gengur upp og ofan. Stirðleiki og sárir vöðvar er eiginlega bara orðin hluti af próflestrinum. Ef maður er ekki stirður þá er maður ekki búinn að læra nóg ;)

Ég er orðin frekar pirruð á þessari námstækni sem ég hef tileinkað mér og felst í því að þurfa að skrifa ALLT niður sem ég ætla mér að muna. Hægri úlnliðurinn minn er alveg kominn með nóg og kvartar sáran.

Ég þoli ekki þegar það er gott veður og ég þarf að vera inni að læra. Dagurinn í dag var svoleiðis óþolandi dagur. Sólin skein sínu blíðasta og fölu kinnarnar mínar hefðu alveg verið til í að fara í sund. En nei, kompan beið mín.

Ég er mjög fegin að þessu fer að ljúka bráðum. Undanfarnir tveir dagar hafa verið sérstaklega langir og erfiðir lærdómslega séð en vonandi skilar það sér í hjúkrunarstjórnunarprófinu á morgun. Ég er alveg búin að ákveða það að taka allan daginn á morgun í frí og byrja ekki að læra undir geðið fyrr en á laugardaginn. Enda er ég að fara á útskriftarsýninguna hjá Agli annað kvöld, en þar er hann að fara að kynna borðspilið sitt

Kv. Hófí (í kvörtunarstuði)

3 ummæli:

Katrín sagði...

hæhæ þú átt alla mína samúð...
ég er í alveg sama pakkanum nema ég er með víðáttubrjálaði í stofu H207 (hún er huges) og ef þetta breytist ekki verð ég komin með hamborgara/trukkarass 16. maí
eins og það er nú flott, jæja sykursnúðurinn minn ég ætla að halda áfram að lesa heimspeki og aðferðafræði. Þó mig langi nú mest til að opna einn bjór og chilla ;)

Nafnlaus sagði...

Issssssss þetta verður búið áður en þú veist af og verður komin út í sólarlanda í miklu betra veður en þetta íslenska hehehe.:):) Gangi þér vel hon.:):)

Nafnlaus sagði...

Feel your pain. Var skila seinasta prófinu í gærkvöldi...vissi ekkert hvað ég átti af mér að gera í morgun þegar ég vaknaði. Elska þessa tilfinningu. Gangi þér vel að klára prófin - bara tveir dagar í viðbót.