14 apríl 2008

Menningarstig

Við Egill toppuðum menningarskala okkar og skelltum okkur á óperuna Cosi fan tutte í gærkvöldi. Hvorugt okkar hefur nú mikinn áhuga á óperu en var tilefnið að styðja Svein, vin Egils sem fer með eitt aðalhlutverkið í þessu verki. Stóð hann sig með prýði. Að mínu mati mætti stytta verkið úr 3 klst. niður í 1 klst., aðallega vegna bakverkja sem hljótast af því að sitja í gömlum sætunum. Ég get í það minnsta sagt að ég hafi séð óperu og græði nú þó nokkur menningarstig þar.

Nú er ég búin með eina viku af þremur í geðhjúkrunarverknáminu. Eftir þessa viku get ég í það minnsta sagt að ég muni ekki starfa sem geðhjúkrunarfræðingur í framtíðinni. Þetta er svo allt annað en maður er vanur, ekki þessi föstu verk og því finnst mér oft lítið um að vera og tíminn líða hægt. Ég stefni því áfram á ljósmóðurina sem fyrr.

Ég er orðin svolítið óþolinmóð þessa dagana. Langar bara að klára þetta verknám helst í gær og drífa mig í prófin og hoppa af stað til Krítar í sól og sumaryl. En ég verð bara að bíða þolinmóð.

Hófí

4 ummæli:

Katrín sagði...

hæhæ ég var líka svaka menningarleg, fór á sinfóníutónleika í dag. Hvað er að verða með okkur menninga plebbana

Nafnlaus sagði...

Ekkert menningalegt að gerast hjá mér þessa dagana ha ha ha.:):) En sól og sumar og mar nýtur lífsins....Have fun í geðhjúkrun hon....svo bara áður en þú veist af verðuru komin í sól o g sumaril og heim aftur hehehe.:):)

Nafnlaus sagði...

Jahá, við höfum greinilega lært mikið af þessari Reykjavíkurdvöl okkar :) annars þurfum við að fara að hittast bráðum...svona aðeins að dusta rykið af okkur fyrir próf.

Ég skal alveg þiggja sól og sumaryl, en ég veit ekki með þetta að koma heim aftur ;)

Nafnlaus sagði...

Hæhæ
Ákvað að kasta á þig kveðju....er á leiðinni núna útí bíl að keyra út á flugvöll..við sjáumst vonandi eitthvað á næstunni, ég kem örugglega eitthvað til Rvk á meðan ég er heima :)
Heyrumst :)