07 apríl 2008

Skólafríi að ljúka

Ég er að fara að byrja í geðhjúkrunarverknáminu á morgun og hlakka eiginlega bara mjög mikið til. Ég er komin með nóg af því að hanga heima og reyna að læra. Einnig verður þetta verknám mjög ólíkt því sem ég hef kynnst hingað til. Ég er hins vegar ekki spennt yfir þeim verknefnum sem fylgja þessu verknámi. Af hverju þarf alltaf að vera að skemma verknámin með þessum blessuðu verkefnum?

Var að ljúka frekar þæginlegri vinnuhelgi á vökudeildinni. Það var rólegra að gera heldur en síðustu helgar og ekki skemmdi það fyrir að ein okkar kom með ís og bakaði vöfflur í gær. Svo eru foreldrar alltaf að gefa okkur nammi þegar krílin eru að útsrifast þannig að það er í raun stórhættulegt að vinna þarna ef maður er í einhverju átaki. Ég er búin að ákveða það að fara aldrei í nammibindindi aftur, því þá langar mig bara meira í nammi.

Ég fór í afar vel heppnaða sumarbústaðarferð með hjúkkunum mínum á fimmtudaginn sl., þar sem eldaður var góður matur, fengið sér í glas og spjallað fram eftir kvöldi. Eitthvað vorum við nú samt þreyttar og vorum farnar að sofa upp úr 02:00, stútfullar af mat og nammi.

Annars er lítið að frétta. Búin að næla mér í þetta skemmtilega kvef, vakna alltaf með hausverk og stífluð ég veit ekki hvert og hellur fyrir eyrum. Ekki skemmtilegt.

Hófí

1 ummæli:

Nafnlaus sagði...

Ertu bara ekki komin með þessa pesti sem ég fékk....alla vega svipuð lýsing hmmmm.....Farðu vel með þig hon.:):) Þú getur þó alltaf huggað þig við þegar þú ert í verkefnunum að þau ljúka einhverntímann og þá fer nú heldur betur að styttast í you know what hehehe:):) Sól og sumar....Knús knús