Ég er búin að vera að vinna mikið undanfarið í þessu skólafríi mínu. Var á næturvakt í nótt, en ég hef ekki tekið næturvaktir síðan sl. sumar. Þetta var reyndar mjög fínt og tíminn leið hratt. Alltaf jafn skrítið samt að fara heim að sofa þegar byrjað er að birta til og allir aðrir eru nýkomnir í vinnu sína. Ég er að fara á morgunvaktir um helgina þannig ég gat ekki leyft mér að sofa lengur en til kl. 14...þannig ég er frekar mygluð í augnablikinu.
Ég er mikið búin að vera að velta fyrir mér ljósmæðranáminu, hvar ég vilji læra þetta og hvort ég vilji fara strax eða ekki. Hugsa samt að ég sæki strax um hér heima til að þær viti allavega af mér því það komast ekki margir inn í einu, um 10 stk á hverju ári. Þetta kemur vonandi allt í ljós með tímanum.
Eitthvað hefur farið minna fyrir lærdómnum en ætlað var því bókin sem ég er að lesa er helv. leiðinleg. Það verður því spýtt í lófana næstu 3 vikur. Ég hef hins vegar verið ótrúlega dugleg í ræktinni (svona til að friða samviskuna í samb. við lærdómsleysið) og er meira segja farin að þyngja lóðin eitthvað.
Framundan er svo norðurför hjá okkur Agli en við verðum á Akureyri 17.-25. mars
Hófí
14 mars 2008
Gerast áskrifandi að:
Birta ummæli (Atom)
3 ummæli:
Gæti trúað að næturvaktirnar séu erfiðar, hérna var verið að breyta klukkunni í sumartíma aftur...færðist einn klukkutíma fram og maður er alveg ónýtur...fer seint að sofa og sefur fram að hádegi...
Vonandi sjáumst við fljótlega ;)
Noh....mar fer bara bráðum að sjá ykkur hehehe:):)
hæhæ þú hlítur að vera búin að hvíla þig vel um páskann þannig að þú getur ekki enn verið þreytt ;)
hvað er svo að frétta af þér?
Skrifa ummæli