05 mars 2008

Skyndihjálp

Þá er ég komin í hið langþráða skólafrí ef frí má kalla, en ég er búin að vera að vinna undanfarin 2 kvöld fór á skyndihjálparnámskeið í dag og er að vinna annað kvöld. Það er samt mikill léttir að vera búin með 2 verknám af þremur.

Á skyndihjálparnámskeiðinu í dag horfðum við á amerískt idiot-proof myndband þar sem hlutirnir eru endurteknir tvisvar og svo einu sinni enn bara til öryggis. Leikararnir með þvílíku tilþrifin sem bentu til þess að þeir hefðu líklegast aldrei verið fyrir framan myndavél á ævinni. En þetta síaðist allavega inn og ég gat brosað yfir því hvað þetta var hallærislegt á pörtum.

Því næst tók við verkleg kennsla við að hnoða og blása dúkkur af öllum stærðum. Komst að því að ég er með frekar lítinn munn miðað við fullorðins dúkkuna og þurfti því að hafa mig alla við til að ekki læki loft meðfram. Það tókst með því að galopna muninn og næstum því taka dúkkuna úr hálslið. Það var auðveldara að blása í þær með maska og belg. Einnig æfðum við okkur í að gefa dúkkunum okkar rafstuð með þar til gerðu tæki og barkaþræða þær.

Þannig að nú er ég orðin voða klár í skyndihjálp og get hugsanlega gert eitthvað af viti ef ég skyldi koma að manneskju í hjarta- eða öndunarstoppi.

Hófí

2 ummæli:

Katrín sagði...

hæhæ takk fyrir spjallið í dag :)
svo verðum við að fara að plana matarboð, humarinn bíður

Nafnlaus sagði...

Takk sömuleiðis...humar hljómar mjög vel :)