25 febrúar 2008

Hjúkrunarstjórnun

heitir verknámið sem ég er í núna á 13D, þvagfæraskurðdeild. Ég er sem sagt með einn hjúkrunarfræðing og einn sjúkraliða með mér í hóp og er ég hópstjórinn. Í byrjun hverrar vaktar þarf ég að útdeila verkefnum og svo er haldinn hádegisfundur um gang mála. Ég var búin að mikla þetta allt fyrir mér áður en ég byrjaði, en svo er þetta alls ekkert svo slæmt. Þetta tekur vissulega á til lengdar því ég þarf að undirbúa mig vel fyrir hvern dag. Ég átti líka vinnuhelgi upp á Vökudeildinni þannig að ég er eiginlega bara búin að búa uppi á spítala sl. viku og orðin mjög þreytt. Ég verð því mjög fegin þegar þessu lýkur á föstudaginn. Þá verð ég komin í 5 vikna skólafrí :)

Annars er ég farin að halda framhjá myspace því Egill stofnaði Facebook handa mér í gær. Er ennþá að reyna að læra inn á það allt saman. Verð bara með bæði þótt ég sé ekki mjög virk í netheiminum.

Hófí

4 ummæli:

Nafnlaus sagði...

Er ekki gott að fá að stjórna? En ég skil ábyrgðina. Þú ferð létt með þetta eins og allt sem þú tekur þér fyrir hendur.

Nafnlaus sagði...

Sammála mömmu þinni skvís.:):) Veit að þú rúllar í þessu eins og öllu öðru thíhí:):) Annars er allt að koma hjá mér hérna heima við.....ekki haft mikinn tíma í heimsóknir en það kemur....Hlakka til að sjá ykkur þegar þið komið.:):)

Nafnlaus sagði...

þetta gefur manni svolítið aðra innsýn í starfið. maður er einhvern veginn alltaf á tánum.

hlakka til að kíkja á nýju íbúðina, það fer nú að styttast í okkur :)

Nafnlaus sagði...

Þú ert svo dugleg, ferð létt með þetta :)
Það er drullukalt hjá okkur þessa dagana, 10-12 gráður á nóttunum og 18-24 á dagin.....alveg glatað ;) Allavega erum við öll að fá kvef og hálsbólgu, ekki gott..
..en við biðjum að heilsa og gangi þér vel