Ástæðan fyrir því að ekkert hefur verið ritað inn á þetta blogg er einfaldlega sú að ég hef ekki nennt því af einskærri leti. Við Egill erum auðvitað löngu komin heim frá Krít og brúnkan svoleiðis rennur af okkur allt of fljótt. Þessi Krítarferð var mjög vel heppnuð og hefðum við alveg viljað vera viku lengur eða svo. Vorum ekki alveg tilbúin í að fara heim þegar á hólminn kom.
Það sem stóð uppúr ferðinni var föstudagurinn 30. maí en þá gengum við lengsta gljúfur Evrópu, Samaria. Þetta voru 16 km allt í allt, tók um 5 klst. og var ég að drepast úr strengjum í kálfunum í 4 daga eftir á! Ég sem hélt nú að ég væri í alveg ágætis formi. Myndin hér til hliðar er af mér dauðþreyttri eftir gönguna. Loksins komin á veitingastaðinn KRI KRI.
Þessa dagana er ég í 80% vinnu á Vökudeildinni. Hugsa að ég verði þar áfram næsta vetur líka með skóla. Erfitt að slíta sig frá stöðum þar sem manni líkaar vel og kann flest allt. Annars gerðist ég nú myndarleg húsmóðir um daginn og saumaði nýjar gardínur fyrir "stofu" gluggann. Kom nú bara vel út þótt ótrúlegt megi virðast og íbúðin virðulegri að sjá.
Svo er fyrirhuguð norðurferð núna um helgina, eða 4.-8 júlí.
Hófí
3 ummæli:
hlakka til að sjá þig hon.:):) Kemur ekki Egill líka???
Jú, hann kemur líka en stoppar mun styttra.
Hey ég labbaði einmitt þarna líka í útskriftarferðinni. Geðveikt! Og hver veit nema ég hafi að því loknu sest inn á þennan sama veitingastað!
Skrifa ummæli