Allt gott að frétta af okkur. Hótelið er flott, maturinn fínn og veðrið æðislegt. Við Egill ætluðum okkur svo aldeilis ekki að brenna á fyrsta degi og smurðum okkur því samviskusamlega. En allt kom fyrir ekki; ég var rúdolt með rauða trýnið og Egill varð red-neck eftir sandkastalabyggingu. Aloe vera túban sem við keyptum í fríhöfninni kom sér því að góðum notum og er ég farin að sjá fram á það að við klárum hana áður en þessari ferð lýkur.
Það var farið varlega í sólbaðið í dag og rauðum blettum hlíft með bolum. Vorum að lesa í sólbaði í dag; ég Englaflug en Egill er að lesa Harry Potter 6 en einmitt á þessu augnabliki er ég að drekka kokteilinn Harry Poter hjá honum Stelios, en hann kann að segja Skål!
Við erum núna mjög fegin að hafa tekið hálft fæði á hótelinu því það er allt frekar dýrt hér miðað við nýja gengið. Það sem við borguðum fyrir þetta hálfa fæði er pottþétt nú þegar búið að borga sig upp því Egill étur á við þrjá hesta og ég þarf alltaf að bíða eftir að hann klári matinn sinn. Þetta heyrist reglulega: "uhhh, smá kjöt í viðbót og svo eftirréttur".
Núna eru loksins komnar inn nokkrar myndir á myndasíðuna.
Segjum þetta gott í bili, kem með frekari fréttir síðar
Hófí
23 maí 2008
Gerast áskrifandi að:
Birta ummæli (Atom)
4 ummæli:
Greinilega stuð hjá ykkur í sólinni.:):) Frábærar myndir og skemmtið ykkur áfram vel í útlandinu......Vorum í 14 sæti í júró hehehe.:):) Svona ef þið skilduð vilja vita það thíhí......
Gaman að sjá myndirnar frá ykkur. Hjá okkur er sól og blíða og um 20 gráður.
Kveðja frá okkur
mamma
Hæhæ gaman að lesa fréttir frá ykkur útá krít, ég fór einmitt í fyrsta sólbaðið mitt í dag eftir pakkningar og skaðbrann..vel yfir 30 gráður hérna enda er maður bara inni á milli 12 og 4 :)
Sjáumst fljótlega
Hei....bara alltaf í sólinni?????? Á ekkert að fara að setja einhverjar línur hehehe.:):) Kveðja úr sólinni hér á Akureyri thíhí.:):)
Skrifa ummæli