Þess má geta að vegna veðurs er ég eiginlega orðin háð því að sofa með eyrnartappa. Vindurinn fer óstjórnlega mikið í taugarnar á mér og ef lokaður er glugginn þá verður heitt og ólíft í íbúðinni. Svo vakna ég oftast um miðja nótt við að annar tappinn er dottinn úr og hefst þá leitin mikla. Er farin að taka á það ráð að hafa aukatappa tilbúinn á náttborðinu. Skemmtileg saga.
Eins og sjá má af ofangreindri sögu er lítið að frétta af mér og mínum.
Annars vil ég benda þeim sem hafa áhuga á að kíkja á bordspil.tk en það er síða sem Egill hannaði til að sýna framvindu útskriftarverkefnis síns.
Hófí
12 febrúar 2008
Gerast áskrifandi að:
Birta ummæli (Atom)
2 ummæli:
Ég legg til góða sögu í púkkið. Í síðasta bloggi skrifaðir þú:
"ég hef til að mynda ekki þorað út í allan dag því það er búið að vera alveg klikkað veður"
Fyrst sýndist mér standa "ég hef til að mynda ekki BORIÐ út í allan dag..."
Sem sagt, ég hélt eitt augnablik að þú værir heimsins samviskulausasti blaðberi! Já, virkilega góð saga. Ég held ég skrifi hana niður ;o)
Annars bara að kasta á þig kveðju...
haha! ég mundi aldrei nenna að vera blaðberi...tók nokkur skipti með bróður mínum fyrir nokkrum árum og mun aldrei láta plata mig út í svoleiðis vitleysu...allavega ekki meðan ég bý á Íslandi í "góða" veðrinu
Skrifa ummæli