22 janúar 2009

Síðasti skóladagurinn í hjúkrunarfræði

Í dag var síðasti skóladagurinn minn, þ.e. síðasti fyrirlestradagurinn í B.S. gráðuna. Á morgun er ég að fara að leika við Hermann hermi í verknámsstofunni. Eftir það tekur við heilmikil lokaverkefnisvinna og verknám á Bráðamóttökunni, Gjörgæslunni, Meðgöngudeild og Hreiðrinu. Þannig að það verður nóg að gera framundan og ég verð útskrifuð áður en ég veit af. Ég er ekki alveg að trúa því að þessu sé bráðlega að fara að ljúka, en ég mun að öllum líkindum útskrifast 13.júní 2009, nema mér takist að falla eða klúðra lokaverkefninu :/

Ég er eiginlega komin á það að vinna í 1-2 ár eftir útskrift áður en ég fer í ljósmóðurfræðina. Ég er alveg komin með nóg af því að vera í skóla og þarf á smá pásu að halda. Ég hef líka áhuga á því að kynnast Vökudeildinni enn betur áður en sérhæfi mig sem ljósmóðir. Þannig að ég krosslegg fingur um að ég fái að halda áfram þar eftir útskrift. Hérna áður fyrr var barist um nýútskrifaða hjúkrunarfræðinga en eins og ástandið er í þjóðfélaginu í dag þá getur enginn verið öruggur með vinnu. Í fyrsta skiptið í langan tíma eru flest allar deildir spítalans fullmannaðar.

En núna þarf ég að skella í tvö köld rúllutertubrauð fyrir Hlaðborgð 4. árs hjúkrunarnema sem verður haldið í Eirbergi á morgun, föstudaginn 23. janúar kl. 11:30-13:30. Allir að mæta og borða eins mikið og þeir geta fyrir 1200 kr.

Hófí

2 ummæli:

Nafnlaus sagði...

Vá hvað þetta líður....Áður en þú veist af verður komið júní thíhí.:) Gangi þér rosa vel í þessu öllu saman sem þú átt eftir að gera í vetur.:) Frænkuknús.:)

P.s. Hvenær kemurðu svo næst norður????...Ég ætla að reyna að kíkja suður þegar sólin er aðeins farin að hækka hahaha:) En það verður ekki allveg strax

Nafnlaus sagði...

Ég veit ekki alveg hvenær ég kemst norður...það verður eitthvað púsl.