Ég er vægast sagt búin að nýta mér undanfarnar tvær fríhelgar mínar alveg í botn. Vísindaferð, út að borða, kaffihús, matarboð, 2svar í bíó (frítt), 1x í leikhús og eitt heljarinnar djamm. Dagurinn í dag hefur hins vegar farið í mikla leti fyrir utan það að vígja nýju þvottagrindina okkar (sú gamla gaf upp öndina fyrir tilstilli of þungra handklæða). Talandi um allt þetta þá mæli ég eindregið með því að fólk skelli sér á Brúðgumann, mjög góð mynd. Ég var ekki alveg jafn hrifin af Jesus Christ Superstar.
Framundan er mikið verk, því næstu 5 vikur mun ég vera í tveimur verknámum og mun sitja sveitt við að gera öll verkefnin sem þeim fylgja. Einnig er þó nokkur vinna á Vöku framundan. Það verður því nóg að gera. Marsmánuður verður hins vegar mjög ljúfur...ætla bara að nýta tímann í smá auka vinnu, lærdóm og svo vorum við Egill að panta okkur flug norður 17.-25. mars.
Ég er vægast sagt komin með algjört ógeð á veðrinu á þessu landi. Það er alltaf brjálað rok, ég hef til að mynda ekki þorað út í allan dag því það er búið að vera alveg klikkað veður. Ég vil ekki meiri snjó/slabb/vind.
Annars er ekkert sérstakt í fréttum.
Hófí
27 janúar 2008
Gerast áskrifandi að:
Birta ummæli (Atom)
7 ummæli:
Blíða hér alla daga he he he.:):) Aðeins rok núna......:) Hlakka til að sjá ykkur og þá get ég sýnt ykkur nýja plazið.....gangi þér vel í öllu sem framundan er:)
takk og sömuleiðis. Hlökkum til að sjá slotið :)
nei ég trúi ekki að þvottagrindin hafi gefið upp öndina, hún hafði svo mikinn persónuleika ;)
en vá ég hefði viljað djamma með ykkur á laugardaginn, en einhver varð að hella drykkjunum í ykkur ;)
ég verð bara með næst
jújú hún bara féll saman, fullhlaðin af þvotti. Úr varð mikið pússl hvernig ætti nú að halda henni uppi meðan þvotturinn væri nú að þorna. Fyrst var prófað límband sem hélt þessu í svona 3 mínútur. Að lokum vara þvottagrindin skorðuð milli sófans og rúmsins :)
Nýja þvottagrindin hefur ekki síðri persónuleika. Hún er svolítill trukkur, svona stór og stæðileg og gefur sko ekkert undan ;)
Jamm þú verður bara að vera með næst...þú hefðir átt að sjá okkur labba heim í rigningunni :)
Haha mín gaf sig rétt áður en ég flutti út, límbandi virkaði á hana...ég hef kannski ekki verið með eins mikið á henni :D
eða verið með sterkara límband heldur en ég...ég var bara með svona litla,glæra, mjóa rúllu.
já ætli það ekki frekar, ég var með þetta brúna breiða
Skrifa ummæli