17 september 2007

Hvað er inn í dag?

Argentína Steikhús er sko enginn suddastaður. Fór á þann stað í gær ásamt fríðu föruneyti tengdafjölskyldu minnar í boði yndislegrar tengdamóður minnar.Hef að ég held aldrei smakkað jafn margar kjöttegundir á ævinni: humar, hrefna, önd, vel steikt naut og eitthvað hrátt kjöt líka. En það var ekki bara kjötið og félagsskapurinn sem var góður heldur var fyrirtaksþjónusta þarna enda liggur við bara akureyringar að vinna þarna :)

X- Files er líka í uppáhaldi þessa dagana og eyðum við Egill ófáum stundum á alluc.org. Erum að tækla 2. seríuna núna. Fox og Scully í essinu sínu og David Duchovny er nú bara dáltið sætur.

Mahjong á hug minn allan. Ég er húkt. Get ekki hætt fyrr en að ég næ að klára borðið. Er komin í normal og miðar ekkert áfram.

Goldminer átti einnig hug minn allan fyrir stuttu, en ég komst yfir þá áráttu eftir að ég náði metinu hans Egils. Þá var ég sátt.

Annars er ég ekki búin vera neitt svakalega hress síðan í gærmorgun. Komin með svæsið kvef og hálsbólgu, svona þannig að mér finnst ég vera stífluð alla leið upp í ennisholurnar. Þannig að gærdagurinn var einungis nýttur í sjálfsvorkunn og að horfa á þá uppbyggilegu mynd Dumb and Dumber, ásamt tveim X-files (og svo fór ég auðvitað út að borða). Ég drullaði mér nú samt í skólann í morgunn þar sem að ég er á þeirri skoðun að maður sé ekki veikur nema maður sé með hita og ég fæ aldrei hita. Held ég taki því nú samt rólega það sem eftir er dagsins. Reyni kannski við Mahjong ;) eða jafnvel les nokkrar síður í blessuðu námsbókunum.

Hófí

5 ummæli:

Katrín sagði...

http://mbl.is/mm/folk/frett.html?nid=1292087
eigum við að skella okkur í sund ;)

Nafnlaus sagði...

Já, NEI takk! Djöfull vissi ég nákvæmlega að þetta tengdist þessum kvikyndum á einhvern hátt. Ég fæ hroll bara við tilhugsunina.

Nafnlaus sagði...

Hef ekki prófað Argentína steikhús en hérna er staður sem heitir Cheescake factory sem er ótrúlega góður....
..þú þarft að fara að vera eitthvað inná msninu svo ég geti farið að heyra eitthvað í þér..

Nafnlaus sagði...

vona að þér sé að batna skvís.:)

Nafnlaus sagði...

kvittaðu hjá Birkir hon he he he.:) Svo við fáum spurningaleikinn okkar aftur á stjá.:) MYNDIR úr Rhodos eru komnar upp hjá honum he he he.:)